Heimild: Yahoo/AP
Búið er að reka Markus Kattner úr stöðu sinni sem fjármálastjóra Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA.
Kattner hefur starfað sem fjármálastjóri sambandsins í 13 ár og er rekinn eftir víðáttumikla rannsókn. Rannsóknin afhjúpaði óreglulegar greiðslur.
Kattner hefur starfað sem fjármálastjóri sambandsins í 13 ár og er rekinn eftir víðáttumikla rannsókn. Rannsóknin afhjúpaði óreglulegar greiðslur.
Sepp Blatter og Jerome Valcke, yfirmenn Kattner á tíma hans hjá FIFA, vissu af greiðslunum á sínum tíma og gætu lent í vandræðum vegna málsins.
„Við áttum okkur ekki á því hvers vegna þessar greiðslur voru gerðar. Þetta eru mjög vafasamar greiðslur," er haft eftir ónefndum heimildarmanni Associated Press.
Athugasemdir