Þýski landsliðsmaðurinn Mario Götze verður áfram í herbúðum Bayern München.
Liverpool reyndi að fá Götze og sögusagnir voru í gangi um að leikmaðurinn væri ekki í áætlunum Carlo Ancelotti sem tekur við Þýskalandsmeisturunum í sumar.
Liverpool reyndi að fá Götze og sögusagnir voru í gangi um að leikmaðurinn væri ekki í áætlunum Carlo Ancelotti sem tekur við Þýskalandsmeisturunum í sumar.
Þýska blaðið Bild segir að Götze hafi nú ákveðið að vera áfram í München.
„Ég hlakka til næsta tímabils hjá félaginu og mun gera allt sem ég get til að vera í toppstandi á fyrstu æfingu undir stjórn Carlo Ancelotti," segir Götze við Bild.
Götze lék undir stjórn Jurgen Klopp hjá Borussia Dortmund áður en hann fór til Bayern 2013. Hann á ár eftir af samningi sínum við Bæjara.
Á liðnu tímabili var Götze í aukalhlutverki hjá Bayern og var búist við því að hann myndi yfirgefa félagið í sumar. Hlutirnir hafa nú breyst í kjölfar þess að Götze skipti um umboðsmann.
Athugasemdir