Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
banner
   mán 23. maí 2016 12:24
Magnús Már Einarsson
Viðtal
Heimir Hallgríms: Við erum vertíðarfólk
Icelandair
Heimir á æfingu íslenska landsliðsins í dag.
Heimir á æfingu íslenska landsliðsins í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið kom saman í dag til undirbúnings fyrir EM í Frakklandi. Fámennt verður þó á æfingum í vikunni því leikmenn sem spila í Danmörku, Noregi og Svíþjóð koma ekki til móts við hópinn fyrr en í næstu viku.

„Ætli við séum ekki með átta ferska leikmenn á æfingu. Það er gott að geta byrjað á einhverju," sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, í samtali við Fótbolta.net í dag.

„Æfingin í dag fer mest í að sjá hvernig standi menn eru í. Það eru einhverjir með smá hnjask í lok tímabils og við erum að meta standið á mönnum. Við munum kýla aðeins á þetta í dag og sjá hverjir fara að væla."

Ísland fær styttri tíma með allan hópinn en margir keppinautar á EM.

„Ég var að koma frá Ungverjalandi þar sem ég sá Ungverja spila við Fílabeinsströndina. Þeir eru búnir að vera saman í viku og verða allir saman í þessari viku. Þegar við hittum hópinn okkar eru þeir búnir að slípa sig saman í hálfan mánuð. Við erum með marga í Skandinavíu og við getum ekki gert þetta öðruvísi. Það er kannski ekkert betra fyrir okkur Íslendinga að fá of langan tíma. Við erum vertíðarfólk, brettum upp ermar og gerum þetta hratt og vel."

Framundan er vináttulandsleikur við Norðmenn á miðvikudag í næstu viku. Ljóst er að Ísland verður ekki með sitt sterkasta lið í þeim leik.

„Við spilum á þeim mönnum sem geta spilað þann leik. Flestir leikmennirnir á Skandinavíu eru að spila 30. maí og það er ekki sniðugt að spila mörgum þeirra 1. júní. Þeir eiga vanalega frí tveimur dögum eftir leik. Við leggjum áherslu á að láta leikmenn sem þurfa að spila taka þann leik. Jói Berg og Aron spiluðu síðast fyrir þremur vikum svo þeir þurfa á tveimur leikjum að halda," sagði Heimir en Ísland mætir einnig Liechtenstein á Laugardalsvelli þann 6. júní.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner