Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. maí 2016 17:00
Magnús Már Einarsson
Joey Barton á leið til Rangers
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Joey Barton er á leið til skoska félagsins Rangers samkvæmt frétt Sky í dag.

Hinn 33 ára gamli Barton hjálpaði Burnley upp í ensku úrvalsdeildina á dögunum.

Burnley hefur boðið Barton nýjan eins árs samning en hins vegar ætlar hann að hafna því tilboði.

„Erfið ákvörðun sem ég er búin að taka," sagði Barton á Twitter í dag án þess að gefa meira upp um hvað hann væri að tala.

Rangers endurheimti sæti sitt í skosku úrvalsdeildinni á dögunum eftir að hafa verið dæmt niður í D-deild árið 2012 eftir gjaldþrot.
Athugasemdir
banner
banner
banner