Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 23. maí 2016 11:58
Magnús Már Einarsson
Viðtal
Jói Berg: Þakka Guði fyrir að EM er framundan
Icelandair
Jóhann Berg á æfingu Íslands í dag.
Jóhann Berg á æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég þakka Guði fyrir að EM er framundan. Þá er maður ekki í þunglyndi í allt sumar. Maður getur stillt sig inn á EM og gleymt því sem hefur gengið á," sagði Jóhann Berg Guðmundsson við Fótbolta.net fyrir æfingu íslenska landsliðsins í dag.

Jóhann á erfitt tímabil að baki með Charlton en liðið féll úr Championship deildinni og stuðningsmenn mótmæltu eignarhaldi félagsins gífurlega.

„Ég hef aldrei lent í öðru eins. Það voru þrír þjálfarar á tímabilinu, mikið af mótmælum hjá stuðningsmönnum og leikir stoppaðir undir lokin. Það var allt í rugli og þetta er eitthvað sem ég held að ég muni ekki upplifa aftur."

Jóhann Berg reiknar með að yfirgefa herbúðir Charlton í sumar. „Ég held að það sé nokkuð ljóst en maður veit aldrei í fótbolta. Ég vil spila í sterkari deild en League One, með fullri virðingu fyrir þeirri deild."

Jóhann segir að ekkert muni skýrast í hans málum fyrr en eftir EM í Frakklandi.

„Ég og umboðsmenn mínir höfum ákveðið að bíða eftir EM. Ég vil undirbúa mig vel fyrir EM og sjá hvað gerist eftir það. Maður hefur heyrt af áhuga frá öðrum liðum en við ætlum að bíða eftir EM."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner