Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 23. maí 2016 11:22
Jóhann Ingi Hafþórsson
Laugardalsvelli
Kolbeinn: Get vonandi bætt við æfingaprógramið í vikunni
Icelandair
Kolbeinn Sigþórsson í viðtali í dag.
Kolbeinn Sigþórsson í viðtali í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Sigþórsson, framherji Nantes og íslenska landsliðsins sagði í samtali við Fótbolta.net að nýloknu tímabili í Frakklandi hafi verið ákveðin vonbrigði.

Hann var að glíma við meiðsli nánast allt tímabilið og náði því ekki að sýna sitt rétta andlit. Hann segir sig hins vegar allan að vera að koma til og býst við að vera orðinn góður á EM.

„Mín upplifun á árinu var að þetta var ekki besta tímabilið fyrir mig, ég byrja á meiðslum og var að glíma við þau allt tímabilið, það var erfitt að komast í gegnum það og ég var ekki að spila heill mest allt tímabilið."

„Staðan á mér er góð, ég er að fara að æfa í dag og láta reyna aðeins á þetta. Vonandi verður þessi vika góð og ég get bætt ofan á æfinaprógramið mitt í þessari viku."

Hann segir tilfinninguna vera frábæra, nú þegar svona stutt er í mót.

„Hún er frábær, það er gaman að vera kominn hingað að hitta strákana, núna hefst undirbúningurinn af fullu."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner