Varnarmaðurinn sterki Pétur Viðarsson er genginn í raðir FH að nýju og er í leikmannahópi liðsins sem mætir Stjörnunni í 5. umferð Pepsi-deildarinnar klukkan 20:00 í kvöld.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu leiksins
Pétur hætti með FH síðasta haust til að snúa sér að námi í Ástralíu. Hann hafði upphaflega ætlað að fara til Ástralíu á miðju síðasta sumri en ákvað svo að klára mótið og varð Íslandsmeistari með FH síðasta haust.
Hann ákvað svo að hætta knattspyrnuiðkun í bili en er nú snúinn aftur til félagsins og er í leikmannahópnum í kvöld.
FH missti Guðmann Þórisson í KA sólarhring áður en Íslandsmótið hófst í byrjun maí og hafði tilkynnt að færeyski landsliðsmaðurinn Sonni Ragnar Nattestad hafi verið lánaður til Færeyja.
Svo virðist sem félagið hafi hætt við félagaskipti Sonni Ragnars þvi miðvörðurinn er í leikmannahópi FH gegn Stjörnunni í kvöld, annan leikinn í röð sem hann er í hóp hjá Íslandsmeisturunum.
Athugasemdir