Portúgalinn Renato Sanches, sem nýlega skrifaði undir samning við Bayern München, hefur staðfest að hann hafi hafnað tilboði frá Manchester United.
Þessi 18 ára strákur kemur til Bayern frá Benfica.
Þessi 18 ára strákur kemur til Bayern frá Benfica.
Margir stuðningsmenn United reiddust þegar fréttir bárust af því að félaginu hefði mistekist að kaupa þennan spennandi miðjumann.
„Ég hafði úr nokkrum tilboðum að velja, þar á meðal frá Manchester United. Ég valdi Bayern München því það er frábært félag með stóran leikvang þar sem andrúmsloftið er svipað og hjá Benfica. Ég mun vinna titla," segir Sanches.
Athugasemdir