Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára mætast í stórleik í Pepsi-deildinni í kvöld. Stjarnan mætir FH klukkan 20:00.
Með leiknum lýkur fimmtu umferð Pepsi-deildarinnar.
Með leiknum lýkur fimmtu umferð Pepsi-deildarinnar.
Stjarnan er á toppnum með 10 stig en FH er með 9 stig. Það má búast við gríðarlega jöfnum og spennandi leik.
Silfurskeiðin, stuðningsmannahópur Stjörnunnar, notaði Twitter til að minna á hver verði í hlutverki Júdasar í kvöld.
Það er færeyski landsliðsmarkvörðurinn Gunnar Nielsen sem yfirgaf Stjörnuna í vetur og gekk í raðir ríkjandi Íslandsmeistara.
Leikurinn í kvöld verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net en einnig verður hægt að sjá leikinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Við viljum minna Gunnar Nielsen á að hann er Júdasinn í kvöld... Fleira var það ekki í bili. pic.twitter.com/FTW01SV56O
— Silfurskeiðin (@Silfurskeidin) May 23, 2016
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir