Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 23. maí 2016 10:30
Magnús Már Einarsson
Suarez tæpur fyrir Copa America
Mynd: Getty Images
Luis Suarez, framherji Barcelona, fór meiddur af velli í úrslitaleik spænska bikarsins í gærkvöldi.

Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en Suarez er tæpur fyrir Copa America með landsliði Úrúgvæ.

„Við þurfum að bíða eftir niðurstöðum úr rannsóknum á morgun," sagði Suarez á Twitter eftir leikinn í gær.

„Ég vona að þetta sé ekkert og að ég geti verið með landsliðinu í næstu viku. Takk fyrir stuðninginn."

Úrúgvæ mætir Mexíkó í fyrsta leik á Copa America þann 5. júní en liðin eru í C-riðli ásamt Venezuela og Jamaíka.
Athugasemdir
banner
banner