Hollendingurinn Louis van Gaal hefur yfirgefið Carrington æfingasvæði Manchester United eins og sést á meðfylgjandi mynd. Hann veifaði til fréttamanna þegar keyrt var í burtu.
Van Gaal eyddi deginum í að funda með stjórnarmönnum United en með honum var lögfræðingur á vegum samtaka knattspyrnustjóra á Englandi.
Van Gaal eyddi deginum í að funda með stjórnarmönnum United en með honum var lögfræðingur á vegum samtaka knattspyrnustjóra á Englandi.
Reiknað er með fréttatilkynningu hvað á hverju frá Manchester United þar sem tilkynnt verður að Van Gaal hafi verið rekinn og Jose Mourinho ráðinn í hans stað.
Flutningamenn voru myndaðir fyrir utan heimili Mourinho í London þar sem þeir voru að bera út kassa. Portúgalinn er að flytja til Manchester.
Talið er að Ryan Giggs muni líkt og Van Gaal stíga frá borði en hann hefur verið aðstoðarmaður Hollendingsins.
Manchester United hafnaði í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og missti af sæti í Meistaradeildinni. Liðið náði þó að vinna enska bikarinn en það vann Crystal Palace í úrslitaleik um liðna helgi.
Athugasemdir