Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 23. maí 2016 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vardy missir af næsta landsleik - Er að fara að gifta sig
Vardy mun ekki spila með Englendingum gegn Áströlum
Vardy mun ekki spila með Englendingum gegn Áströlum
Mynd: Getty Images
Jamie Vardy mun ekki spila með Englendingum á móti Áströlum á föstudaginn næstkomandi vegna þess að hann er að fara að gifta sig. Þetta staðfestir Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englendinga.

Vardy skoraði sigurmarkið gegn Tyrkjum í gær, en hann mun ekki fara með liðinu til Sunderland þar sem leikurinn gegn Áströlum fer fram.

„Jamie mun fagna brúðkaupi sínu á miðvikudaginn svo við munum ekki sjá hann í nokkra daga," sagði Hodgson.

„Brúðkaupið hans átti upphaflega að vera í júní á síðasta ári, en ég kallaði hann upp í vináttulandsleiki og hann frestaði því. Hann hefur því rétt á því að gifta sig á miðvikudaginn."

„Við erum ánægðir með Jamie og ég held að sætið hans sé ekki í mikilli hættu, svo þetta hefur ekki valdið miklum vandamálum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner