Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. maí 2016 13:33
Magnús Már Einarsson
Zlatan sagður á leið til Man Utd
Mynd: Getty Images
Hollenska blaðið De Telegraaf heldur því fram að Zlatan Ibrahimovic sé búinn að ákveða að ganga í raðir Manchester United.

Zlatan verður samningslaus í sumar og ljóst er að hann er á förum frá PSG.

Þessi 34 ára gamli Svíi er búinn að ákveða að ganga í raðir Manchester United samkvæmt frétt De Telegraaf.

Í fréttinni kemur einnig fram að Zlatan hafi áhuga á að verða aðstoðarþjálfari Manchester United í framtíðinni.

Zlatan er gífurleag sigursæll leikmaður en hann hefur orðið hollenskur, ítalskur, spænskur og franskur meistari á ferli sínum. Hann hefur hins vegar aldrei spilað í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner