Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. maí 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Huddersfield ekki refsað fyrir að gera tíu breytingar
Huddersfield spilar í úrslitaleiknum á Wembley.
Huddersfield spilar í úrslitaleiknum á Wembley.
Mynd: Getty Images
Greint hefur verið frá því að Huddersfield verði ekki refsað fyrir að tefla fram veikara liði gegn Birmingham þann 29. apríl síðastliðinn.

Huddersfield var búið að tryggja sér þáttökurétt í umspilinu fyrir leikinn gegn Birmingham og ákvað því að gera breytingar á liði sínu.

Huddersfield ákvað að gera tíu breytingar á byrjunarliði sínu og svo fór að Birmingham vann og bjargaði sæti sínu í deildinni.

Blackburn endaði með tveimur stigum minna og féll úr deildinni.

Huddersfield verður ekki refsað fyrir þetta, en þetta gæti orðið til þess að reglubreytingar verði gerðar svo þetta komi ekki aftur fyrir.

Huddersfield mun mæta Reading á mánudaginn í næstu í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn fer fram á Wembley.
Athugasemdir
banner
banner
banner