Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mið 23. maí 2018 22:13
Arnar Helgi Magnússon
Alfreð: Við erum með góðan 24 manna hóp
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alfreð Elías þjálfari Selfyssinga var að vonum mjög sáttur eftir 4-1 sigur sinna stelpna á FH í kvöld. Selfyssingar voru heilt yfir betri í leiknum og unnu leikinn örugglega.

„Að sjálfsögðu hefðum við viljað halda hreinu afþví að við stóðum okkur gríðarlega vel varnarlega, vorum þéttar og vorum búnar að lesa þær vel. Stelpurnar eiga hrós skilið en við verðum að halda fókus."

„Ótrúlegur léttir að taka þessa 3 punkta og reynt að byggja ofaná það. Við erum reyndar búnar að vera að byggja ofaná okkar spil undanfarna 4 leiki og það er búið að vera góður stígandi í þessu. Það tókst að taka 3 stig í dag."

„Mér fannst þetta geggjaður leikur fyrir augað varnarlega fyrir okkur. Þær stóðu sig gríðarlega vel og gerðu það sem var lagt upp með, þær eiga hrós skilið."

Selfyssingar hafa fengið nokkra leikmenn úr háskólabolta frá Bandaríkjunum en þær munu þó staldra stutt við. Til dæmis Eva Lind sem var maður leiksins í kvöld. Alfreð segir mikilvægt að safna stigum meðan þær spila með liðinu.

„Já, við vitum alveg hvað við höfum í höndunum hérna á Selfossi. Þessar stelpur styrkja okkur en ég er hvergi banginn þegar þær fara. Við verðum alveg tilbúin í það, það er bara seinni tíma vandamál."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner