Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 23. maí 2018 18:23
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið Breiðabliks og Víkings: Tokic inn í liðið
Hrvoje Tokic er í byrjunarliðinu.
Hrvoje Tokic er í byrjunarliðinu.
Mynd: Raggi Óla
Bjarni Páll Linnet Runólfsson byrjar í dag.
Bjarni Páll Linnet Runólfsson byrjar í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Topplið Breiðabliks fær Víking R. í heimsókn í 5. umferð Pepsi-deildar karla klukkan 19:15.

Beinar textalýsingar:
19:15 Grindavík - Valur
19:15 Stjarnan - Fylkir
19:15 Breiðablik -Víkingur

Hrvoje Tokic byrjar sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni hjá Breiðabliki í sumar en Sveinn Aron Guðjohnsen fer á bekkinn. Viktor Örn Margeirsson kemur einnig inn á miðjuna fyrir Oliver Sigurjónsson sem er fjarri góðu gamni í dag. Þá byrjar Aron Bjarnason í stað Arnþórs Ara Atlasonar sem hefur byrjað leikina hingað til.

Milos Ozegovic er ekki með Víkingi í dag en Bjarni Páll Linnet Runólfsson tekur stöðu hans á miðjunni.

Halldór Smári Sigurðsson er klár eftir meiðsli og hann kemur inn í hjarta varnarinnar fyrir Gunnlaug Fannar Guðmundsson síðan í leiknum gegn Grindavík á föstudaginn.

Byrjunarlið Breiðabliks
1. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
7. Jonathan Hendrickx
9. Hrvoje Tokic
11. Gísli Eyjólfsson
15. Davíð Kristján Ólafsson
18. Willum Þór Willumsson
19. Aron Bjarnason
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman

Byrjunarlið Víkings
1. Andreas Larsen (m)
3. Jörgen Richardsen
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Alex Freyr Hilmarsson
8. Sölvi Ottesen (f)
10. Rick Ten Voorde
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
21. Arnþór Ingi Kristinsson
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
25. Vladimir Tufegdzic

Beinar textalýsingar:
19:15 Grindavík - Valur
19:15 Stjarnan - Fylkir
19:15 Breiðablik - Víkingur
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner