Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 23. maí 2018 12:17
Magnús Már Einarsson
Mjólkurbikarinn: Þór/KA og Stjarnan mætast
Þór/KA og Stjarnan mætast á Akureyri.
Þór/KA og Stjarnan mætast á Akureyri.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Nú rétt í þessu var dregið í 16-liða úrslit í Mjólkurbikar kvenna. Liðin í Pepsi-deild kvenna koma núna inn í keppnina sem og sex lið sem komust í gegnum fyrstu og aðra umferð.

Stórleikur 16-liða úrslitanna verður á Akureyri þar sem Þór/KA fær Stjörnuna í heimsókn.

Valur og FH mætast í öðrum Pepsi-deildarslag sem og KR og Breiðablik.

16-liða úrslit
KR - Breiðablik
Afturelding/Fram - ÍR
Valur - FH
Fylkir - HK/Víkingur
Þór/KA - Stjarnan
Selfoss - Fjölnir
Keflavík - ÍBV
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. - Grindavík

Leikirnir fara fram 1, 2 og 3. júní næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner