Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, segist vera í góðum gír fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Liverpool á laugardaginn.
Hinn 33 ára gamli Ronaldo segist líða eins og hann sé 10 árum yngri og hann stefnir á að spila fótbolta í mörg ár til viðbótar.
„Í augnablikinu er ég líffræðilega eins og 23 ára," sagði Ronaldo.
„Ég á ennþá langan tíma eftir. Ég get spilað þar til ég verð 41 árs."

„Mér líður vel og ég er ánægður. Ég get ekki kvartað. Við erum að spila annan úrslitaleik á laugardaginn og stuðningsmennirnir standa við bakið á Cristiano."
Athugasemdir