Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Nordsjælland, hefur verið valinn mikilvægasti leikmaður tímabilsins hjá danska félaginu.
Nordsjælland hélt lokahóf sitt í gær og þar var valið tilkynnt.
Rúnar Alex var í lykilhlutverki hjá Nordsjælland þegar liðið endaði í 3. sæti í dönsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.
Nordsjælland hélt lokahóf sitt í gær og þar var valið tilkynnt.
Rúnar Alex var í lykilhlutverki hjá Nordsjælland þegar liðið endaði í 3. sæti í dönsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.
Rúnar er nú á leið á HM í Rússlandi með íslenska landsliðinu.
Mathias Jensen var valinn leikmaður ársins hjá Nordsjælland en hann skoraði tólf mörk og lagði upp tíu á tímabilinu.
Athugasemdir