Einherji 0-1 Afturelding/Fram
0-1 Eva Rut Ásþórsdóttir (64´)
0-1 Eva Rut Ásþórsdóttir (64´)
Einn leikur fór fram í 2.deild kvenna í kvöld og var það leikur Einherja og Aftureldingar/Fram fyrir austan.
Það var lítið sem að gerðist í fyrri hálfleiknum en hvorugu liðinu tókst að skora og því var staðan 0-0 leikhlé.
Í seinni hálfleiknum mættu gestirnir öflugir til leiks og uppskáru eftir því á 64. mínútu þegar Eva Rut Ásþórsdóttir skoraði og kom sínu liði yfir.
Það voru ekki fleiri mörk skoruð í þessum leik og því fór Afturelding/Fram með sigur af hólmi og heim með stigin þrjú.
Athugasemdir