Keppni í Pepsi-deild kvenna er hálfnuð en 9. umferðinni lauk fyrr í vikunni. Hér að neðan má sjá úrvalslið umferða 1-9 að mati Fótbolta.net.
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir - Þór/KA
Gekk í raðir Þórs/KA fyrir tímabilið og hefur stimplað sig inn sem einn af betri markmönnum deildarinnar. Hefur aðeins fengið á sig þrjú mörk í sumar. Þar af tvö úr vítum. Er vel af þessu staðin. Mikill karakter og frábær liðsfélagi. Happafengur fyrir Þór/KA.
Hulda Björg Hannesdóttir - Þór/KA
Verið mikilvægur hlekkur í öflugri vörn Þórs/KA í sumar. Tekið virkan þátt í sóknarleik liðsins. Þessi 17 ára stelpa, lék aðeins rúmlega 10 mínútur í Pepsi-deildinni í fyrra. Ótrúleg frammistaða á sínu fyrsta tímabili.
Bianca Sierra - Þór/KA
Hún og Lillý Rut hafa verið hjartað í sterkustu vörn deildarinnar í sumar. Erfitt að gera upp á milli þeirra. Bianca kom til Þórs/KA fyrir sumarið og hefur fjórum sinnum verið í úrvalsliði umferðarinnar. Mikill fengur fyrir Þór/KA.
Guðný Árnadóttir - FH
Enn einn aldarmótar-leikmaðurinn sem er að stimpla sig inn í þessa deild. 16 ára lék hún 16 leiki með FH í fyrra og er núna að taka risa stórt skref fram á við. Stjórnar vörn FH eins og herforingi og tekur flest öll föst leikatriði liðsins. Þrjú mörk í sumar frá Guðnýju takk fyrir.
Hlín Eiríksdóttir - Valur
Ein af þremur í vörninni fædd árið 2000. Eftir að hún fékk traustið í liði Vals hefur spilamennska liðsins batnað til muna. Virkilega efnilegur leikmaður sem fékk meira hlutverk í liði Vals í kjölfar þess að Elísa Viðarsdóttir sleit krossband. Leggur upp mörk og tekur virkan þátt í sóknar uppbyggingu Valsliðsins. Hefur leyst stöðuna sem hægri vængbakvörður mjög vel en hún spilaði upp alla yngri flokka á vinstri kantinum.
Svava Rós Guðmundsdóttir - Breiðablik
Þrátt fyrir að hafa ekki verið valin í EM hópinn þá hefur hún spilað virkilega vel í sumar. Hefur skorað þrjú mörk og lagt upp að minnsta kosti þrjú til viðbótar. Býr yfir gríðarlegum hraða og hefur bætt sinn leik mikið.
Sigríður Lára Garðarsdóttir - ÍBV
Akkerið á miðjunni hjá ÍBV auk Rutar Kristjánsdóttur. Þvílíkur vinnuhestur sem hefur unnið sér sæti í íslenska landsliðinu. Ein af ástæðunum fyrir góðu gengi Eyjaliðsins fyrri hluta móts. Er að stimpla sig inn sem einn besta miðjumann Íslands.
Katrín Ásbjörnsdóttir - Stjarnan
Fór ekki inn á knattspyrnuvöllinn í upphafi móts án þess að skora mark eða mörk. Er markahæst í deildinni með átta mörk ásamt Fanndísi. Tekið við sem leiðtogi í Stjörnuliðinu og unnið sér sæti í landsliðinu.
Fanndís Friðriksdóttir - Breiðablik
Í sumar hefur Fanndís stimplað sig inn sem einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Breiðablik missti töluvert af leikmönnum fyrir tímabilið en Fanndís hefur ekki látið það á sig fá. Eftir að hafa lagt meira púður í að leggja upp mörk í fyrra hefur hún heldur betur verið á skotskónum í sumar og er markahæst ásamt Katrínu.
Cloé Lacasse - ÍBV
Hún verður bara betri og betri. Á sínu þriðja ári í Eyjum hefur Cloé verið nær óstöðvandi í sumar. Skorað sjö mörk í níu umferðum og ekkert þeirra úr vítum. Hrikalega hraður og öflugur leikmaður sem hefur látið þónokkra varnarmenn andstæðinga líta illa út í sumar. Frábær leikmaður.
Sandra Stephany Mayor Gutierrez - Þór/KA
Hvar á maður að byrja? Borgarstjórinn fyrir norðan heldur áfram að slá í gegn eftir að hafa komið inn í deildina í fyrra með látum. Hún hefur skorað sex mörk og lagt upp önnur sex fyrir Þór/KA í sumar. Virðist oft á tíðum vera óstöðvandi.
Varamenn:
Lindsey Harris - FH
Ingibjörg Sigurðardóttir - Breiðablik
Lillý Rut Hlynsdóttir - Þór/KA
Elín Metta Jensen - Valur
Agla María Albertsdóttir - Stjarnan
Natalia Ines Gomez Junco Esteva - Þór/KA
Berglind Björg Þorvaldsdóttir - Breiðablik
Athugasemdir