„Maður er alltaf sáttur við að sigra og við vorum að spila á móti hörkuliði í dag og þeir létu okkur hafa fyrir hlutunum en góður fyrri hálfleikur í dag skóp þennan sigur" sagði Helgi Sigurðsson þjálfari Fylkis eftir góðan 2 - 0 sigur á Selfossi.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 0 Selfoss
„Það var smá værukærð í seinni hálfleik og manni stóð aldrei alveg á sama. Fyrstu tíu í seinni hálfleik vorum við ekki eins og við vorum í fyrri hálfleik.
Þetta lítur vel út hjá okkur en það er nú bara þannig í boltanum, að þetta ert fljótt að breytast en auðvitað gleðjumst við yfir góðum árangri. En svo er bara alvöru leikur í bikarnum á móti FH á fimmtudaginn.
Sigrar gefa alltaf gott boost í næstu leiki, alveg sama hvaða leikir það eru. En pressan verður á FH í þessum leik"
Nánar er rætt við Helga í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir