Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 23. júní 2017 08:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Inter neitar tilboði Everton í Brozovic
Everton hefur áhuga á Brozovic
Everton hefur áhuga á Brozovic
Mynd: Heimasíða Inter
Ítalska stórliðið Inter Milan hefur neitað tilboði enska úrvalsdeildarfélagsins Everton í miðjumanninn Marcelo Brozovic.

Brozovic er 24 ára gamall og kemur frá Króatíu og getur leikið hvar sem er á miðjunni en hann hefur verið hjá Inter frá árinu 2015 en hann kom frá Dinamo Zagreb.

Hann hefur leikið 27 landsleiki fyrir Króatíu. Brozovic byrjaði á varamannabekknum gegn Íslandi fyrir nokkrum vikum en kom inná á 63. mínútu leiksins.

Everton hafa verið duglegir á leikmannamarkaðnum í sumar en eru ekki enn hættir.

Áður hefur Brozovic verið orðaður við Juventus, Arsenal, Chelsea og Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner