Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, var að vonum ánægður með sigur síns liðs í Borgunarbikarnum í kvöld en liðið vann Hauka 1-0.
Þessi lið mættust einnig í deildinni í síðustu umferð og en sagði Jeffs að leikurinn í kvöld hafi verið öðruvísi.
„Þetta er alltaf öðruvísi í bikarkeppnum og þetta var mjög erfiður leikur, þær voru þéttar og vel skipulagðar og reyndu að beita skyndisóknum á okkur."
„Það var þolinmæðin sem að skóp þennan sigur í dag."
Aðspurður út í álagið síðustu vikurnar viðurkenndi Jeffs að það væri ákveðin þreyta í mannskapnum
„Við höfum verið að spila mikið af leikjum og sömu leikmenn hafa verið að spila þessa leiki. Það er mikið álag og þessir leikmenn eru þreyttir, en við verðum bara að ná góðri endurhæfingu eftir hvern leik."
Jeffs var síðan spurður út í draumamótherja í undanúrslitunum og þá sagðist Jeffs aðeins vilja heimaleik.
Athugasemdir