„Þessi leikur spilaðist betur heldur en fyrri leikurinn," sagði Jóhann Unnar eftir 1-0 ósigur síns liðs gegn ÍBV í Borgunarbikarnum í kvöld.
Þessi lið mættust einnig í deildinni fyrir nokkrum dögum og það líka í eyjum en þá fór leikurinn 3-0 fyrir Eyjastúlkur.
„Við vorum að spila heilt yfir mjög vel og við héldum okkur í stöðum. Við fengum kannski ekki svakalega mörg færi en það voru tvö í seinni hálfleiknum sem að voru ákjósanleg og seinna færið var að mínum mati dauðafæri."
Aðspurður út í leikinn sagði Jóhann að leikurinn hafi verið jafn og það hafi síður verið Haukarnir sem reyndu að brjóta ísinn.
„Mér fannst leikurinn vera jafn og í raun jafn mikið við að reyna að brjóta ísinn eins og ÍBV að reyna að brjóta ísinn."
Jóhann sagði einnig að það kæmi í ljós hvort að liðið myndi styrkja sig í komandi félagskiptaglugga.
„Það kemur bara í ljós, við erum ekkert stressaðir yfir því."
Athugasemdir