Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fös 23. júní 2017 22:13
Lilja Dögg Valþórsdóttir
Katrín Ásbjörns: Baráttan gaf okkur sigur
Katrínu fannst sitt lið vera yfir í baráttunni í kvöld og vildi meina að það hefði skilað sigrinum.
Katrínu fannst sitt lið vera yfir í baráttunni í kvöld og vildi meina að það hefði skilað sigrinum.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Katrínu Ásbjörnsdóttur, fyrirliða Stjörnunnar, fannst leikurinn í kvöld ekki auðveldur.

“Alls ekki. Við vitum alveg að þessir leikir eru mjög erfiðir, á móti Þór/KA, toppliðinu. Þær sýndu það í dag af hverju þær eru efstar í deildinni og gáfu okkur hörkuleik. En við sýndum það að við erum líka gott lið og gerðum það sem við áttum að gera; kláruðum leikinn.”

Lestu um leikinn: Stjarnan 3 -  2 Þór/KA

En bjóst hún við þeim svona föstum fyrir?

“Þær eru alltaf fastar fyrir og þetta er bara baráttulið. En það erum við líka og mér fannst við vera yfir í baráttunni í dag og það gefur okkur sigur.”

Á Katrín sér einhverja óskamótherja í undanúrslitum bikarsins?

“Nei, nei, við viljum mæta hverjum sem er en það væri gaman að fá heimaleik aftur og fá þessa stemningu sem var hérna í dag. En bara hvað sem er, við tökum því.”

Nánar er rætt við Katrínu í sjónvarpinu hér fyrir ofan.

Athugasemdir
banner
banner