Heitasta fréttin í Frakklandi er að Adil Rami, varnarmaður spænska liðsins Sevilla, og sjálf Pamela Anderson séu nýjasta parið.
Þau fóru saman út að borða í gær og láta aldursmuninn ekki trufla sig. Rami er 31 árs en Pamela Anderson verður 50 ára þann 1. júlí.
Þau fóru saman út að borða í gær og láta aldursmuninn ekki trufla sig. Rami er 31 árs en Pamela Anderson verður 50 ára þann 1. júlí.
Í franska blaðinu Voici segir að Rami sé ástfanginn af Pamelu sem sló í gegn í sjónvarpsþættinum Strandverðir á sínum tíma.
Þau eru saman í borginni Nice í Frakklandi, borginni þar sem Ísland vann England í 16-liða úrslitum EM.
Voici segir að Rami hafi verið á ferð og flugi milli Evrópu og Bandaríkjanna til að hitta nýju kærustuna.
Einkalíf Pamelu hefur verið mikið til umræðu á árinu. Hún var að stinga saman nefjum með Julian Assange, stofnanda Wikileaks.
Adil Rami á 33 landsleiki fyrir Frakka.
Athugasemdir