Samúel Kári Friðjónsson verður í leikmannahópi Valerenga gegn Lilleström í norsku úrvalsdeildinni á morgun.
Þetta er í fyrsta skipti sem Samúel Kári verður í hóp í norsku úrvalsdeildinni síðan hann kom til Valerenga til félagsins frá Reading í fyrrasumar.
Samúel Kári sleit krossband á einni af sinni fyrstu æfingum með Valerenga.

Eftir langa fjarveru hefur Samúel Kári komið til baka að undanförnu en hann hefur leikið þrjá leiki með varaliði Valerenga í 2. deildinni auk þess sem hann spilaði með U21 árs landsliði Íslands gegn Englandi á dögunum.
„Þetta hefur verið stórt próf í þolinmæði. Það er stórt fyrir mig að vera loksins klár í slaginn," sagði Samúel við Dagsavisen.
Athugasemdir