Íslandsmeistarar Stjörnunnar fara til Króatíu í undankeppni Meistaradeildar kvenna en dregið var í riðla nú rétt í þessu.
Króatíska liðið Osijek er með Stjörnunni í riðli, SC Istatov frá Makedóníu og KÍ Klakksvík frá Færeyjum.
Króatíska liðið Osijek er með Stjörnunni í riðli, SC Istatov frá Makedóníu og KÍ Klakksvík frá Færeyjum.
Samtals eru tíu riðlar og sigurvegararnir í riðlunum fara áfram í 32-liða úrslitin.
Eitt lið með bestan árangur í 2. sæti fer einnig áfram í 32-liða úrslitin en þar bíða 21 lið sem fá sjálfkrafa sæti þar.
Riðlarnir í undankeppninni fara fram 22-28. ágúst næstkomandi.
Athugasemdir