410 þúsund krónur söfnuðust í keppninni vítaskytta Íslands sem Fótbolti.net stóð fyrir um þarsíðustu helgi þegar Ísland mætti Króatíu.
Styrmir Erlendsson stóð uppi sem sigurvegari í keppninni en þátttakendur voru í kringum 300.
Aldrei hefur jafnhá upphæð safnast í vítaspyrnukeppninni en í fyrra söfnuðust 368 þúsund krónur.
Styrmir Erlendsson stóð uppi sem sigurvegari í keppninni en þátttakendur voru í kringum 300.
Aldrei hefur jafnhá upphæð safnast í vítaspyrnukeppninni en í fyrra söfnuðust 368 þúsund krónur.
Þátttakendur borguðu þátttökugjald sem rennur allt í gott málefni. Peningurinn fer til Vildarbarna Icelandair en upphæðin mun fara í að senda langveik börn og fjölskyldur þeirra í draumaferðina.
Dóra Elín Atladóttir, hjá Vildarbörnum, tók við upphæðinni í dag en Sveinbjörn Jónasson mótsstjóri vítaspyrnukeppninnar afhenti hana.
Þetta var fjórða árið í röð sem Fótbolti.net er með vítaspyrnukeppni og keppnin hefur heldur betur fest sig í sessi. Stefnt er á að hafa keppnina ennþá stærri á næsta ári.
Sjá einnig:
Vítaskytta Íslands 2017 vann keppnina í strigaskóm
Athugasemdir