Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 23. júní 2018 22:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Alba vill enda ferilinn hjá Barcelona
Mynd: Getty Images
Spænski bakvörðurinn Jordi Alba er þessa stundina staddur í Rússlandi þar sem hann er í landsliðshópi Spánverja á HM.

Alba leikur með Barcelona í heimalandinu en hann hefur verið orðaður frá félaginu, hann tjáði sig um þann orðróm á blaðamannafundi á dögunum.

„Ég er mjög ánægður hjá Barcelona. Ef það væri undir mér komið að ákveða hvort ég verði áfram þá myndi ég vilja spila þar út ferilinn."

„En þetta er ekki bara undir mér komið heldur einnig hvað félagið vill gera."

„Það telur auðvitað líka hvernig ég er að standa mig, ég hef verið að gera góða hluti undanfarið. En ég á ekki von á öðru en ég verði áfram hjá Barcelona," sagði Alba.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner