Gylfi Þór Sigurðsson, segir í viðtali við Goal.com, að það hafi verið mikið svekkelsi þegar hann skaut yfir úr vítaspyrnu gegn Nígeríu í gær.
„Það er erfitt að taka þessu. Þetta er líklega erfiðasta augnablikið á ferli mínum," sagði Gylfi við Goal.com.
„Vonandi get ég bætt úr þessu og skorað í næsta leik."
Í viðtali við íslenska fjölmiðla í gær sagðist Gylfi ekki hafa gert neitt öðruvísi en vanalega í aðdraganda vítaspyrnunnar.
„Þetta var sama rútína og ég hef alltaf gert. Því miður fór boltinn yfir," sagði Gylfi.
Sjá einnig:
Gylfi: Ólíkir sjálfum okkur - Óþolinmóðir í seinni hálfleik
Athugasemdir