Juanfran hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Atletico Madrid.
Juanfran hefur verið lykilmaður hjá Atletico Madrid lengi og mun taka sitt níunda tímabil með félaginu.
Varnarmaðurinn knái gekk til liðs við félagið árið 2011 og er ánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning.
„Að vera eitt tímabil í viðbót hér heima fyllir mig stolti og gerir mig mjög glaðan, sagði Juanfran.
Athugasemdir