Það fór ekki milli mála að Tite, þjálfara Brasilíu var mjög létt þegar Coutinho skoraði í uppbótartíma í leik liðsins gegn Kosta Ríka í gær.
Í fagnaðarlátunum sem brutust út rauk Tite af stað en það vildi ekki betur til en að hann tognaði. Tite varð þar með annar þjálfarinn á heimsmeistaramótinu til þess að meiðast en Gareth Southgate, þjálfari Englands fór úr axlarlið þegar hann var úti að skokka.
Eftir að Philippe Coutinho skoraði á fyrstu mínútu uppbótartíma rauk Tite af stað og inn á völlinn en datt á jörðina. Það er mögulega hægt að skella skuldinni á varamarkmann Brasilíu, Ederson Moraes sem virðist hafa ýtt við Tite í öllum hamaganginum. Þetta skrautlega augnablik má sjá hér að neðan.
Tite festeja primeiro gol da Seleção sobre a Costa Rica pic.twitter.com/ngn7SyLFrL
— BN Esportes (@bnesportes) June 22, 2018
Athugasemdir