mið 23. júlí 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Pochettino: Ég er ánægður með hópinn
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur á Englandi, býst ekki við því að fá marga leikmenn til félagsins í sumar.

Tottenham eyddi háum fjárhæðum síðasta sumar er liðið seldi Gareth Bale til Real Madrid og keypti þá Paulinho, Roberto Soldado, Christian Eriksen og Erik Lamela meðal annars en Pochettino tók við liðinu í sumar.

Gylfi Þór Sigurðsson er þá á leið frá Tottenham en einu kaupin til þessa eru Ben Davies frá Swansea City en hann sást á æfingu félagsins í Toronto.

,,Ég er ánægður með hópinn og ég býst ekki við miklum breytingum. Ég gæti bætt við nokkrum leikmönnum en þeir verða þó ekki margir," sagði Pochettino.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner