Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. júlí 2016 17:09
Jóhann Ingi Hafþórsson
Austurríki: Fyrsti leikur Arnórs Ingva endaði með stórsigri
Arnór Ingi spilaði í nýrri deild í dag.
Arnór Ingi spilaði í nýrri deild í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rapid Wien, lið Arnórs Ingva Traustasonar fór heldur betur vel af stað í austurrísku úrvalsdeildinni í dag.

Liðið mætti þá Ried í 1. umferðinni og unnu virkilega öruggan 5-0 sigur.

Arnór Ingvi Traustason spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið en hann spilaði síðustu 20 mínúturnar og kom hann inná í stöðunni 5-0.

Thomas Murg skoraði tvö marka Wien á meðan Christoph Schösswendter, Louis Schaub og Joelinton skoruðu allir eitt.
Athugasemdir
banner
banner
banner