Brynjar Kristmundsson er kominn á lán til Gróttu og mun hann leika með liðinu út leiktíðina.
Hann kemur frá Fram þar sem hann hefur spilað fjóra leiki og skorað í þeim eitt mark.
Þar á undan spilaði hann með Volda í Noregi en þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára, hefur hann alls spilað 148 leiki á Íslandi.
Alls á hann 28 leiki í efstu deild á Íslandi og ætti hann því að reynast Gróttu, sem spilar í 2. deild vel.
Athugasemdir