Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. júlí 2016 09:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
David Moyes orðinn þjálfari Sunderland (Staðfest)
David Moyes er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina.
David Moyes er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina.
Mynd: Getty Images
Sunderland hefur gengið frá ráðningu David Moyes en hann tekur við af Sam Allardyce sem er orðinn landsliðsþjálfari Englands.

Moyes hefur áður þjálfað Manchester United og Everton í ensku úrvalsdeildinni og skrifar hann undir fjögurra ára samning við nýja félagið sitt.

Hann er búinn að vera án félags síðan í nóvember 2015 en hann hefur nú stokkið á tækifærið á að fá að þjálfa í ensku úrvalsdeildinni á nýjan leik.

Moyes er 53 ára og byrjaði hann þjálfaraferill sinn hjá Preston.
Athugasemdir
banner
banner
banner