Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. júlí 2016 12:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Guillermo Varela lánaður til Frankfurt (Staðfest)
Guillermo Varela í leik með Manchester United.
Guillermo Varela í leik með Manchester United.
Mynd: Getty Images
Guillermo Varela, leikmaður Manchester United er farinn á lán til Eintracht Frankfurt.

Frankfurt spilar í þýsku Bundesligunni en hann var ekki í plönum Jose Mourinho fyrir komandi leiktíð.

Hinn 23 ára gamli Úrúgvæi var áður á láni hjá Real Madrid þar sem hann spilaði í varaliði félagsins en hann spilaði fyrir United gegn Wigan á undirbúningstímabilinu fyrir skemmstu.

Hann var hins vegar ekki í leikmannahópnum sem fór til Kína í frekari undirbúningi fyrir komandi tímabil.

Frankfurt liðið hafnaði í þriðja neðsta sæti á síðustu leiktíð en bjargaði sér frá falli með að vinna umspil í lok leiktíðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner