Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 23. júlí 2016 16:13
Aron Elvar Finnsson
Ian Jeffs: Ánægður með mína ákvörðun
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Tilfinningin er mjög góð, þetta er mjög gaman,” sagði Ian David Jeffs þjálfari ÍBV eftir 0-1 sigur á Þór/KA í undanúrslitum Borgunarbikars kvenna í dag.

Lestu um leikinn: Þór/KA 0 -  1 ÍBV

Þetta var svona 50/50 leikur, mikil barátta og gæti kallast svona baráttuleikur. Fyrir tímabilið vorum við búin að stefna á að reyna að berjast um deild og bikar. Það gekk svolítið illa í upphafi móts, náttúrlega búin að tapa allt of mörgum leikjum á heimavelli, en við unnum alltaf í bikarnum og þetta var bara stefna okkar að fara alla leið, engin spurning.”

„Við vorum náttúrlega með okkar plan en það fór svolítið út um gluggan þegar við mættum hingað og völlurinn var bara á floti. Það voru pollar inni í vítateignum og á köntunum, en það var svolítið erfitt að spila svo við breyttum planinu og reyndum að vera meira „direct” og komast á bakvið þær.”


ÍBV-stúlkur virtust vera miklu orkumeiri í framlengingunni og réði það úrslitum. Aðspurður um hvort hann hafi verið með liðið á stífum þrekæfingum sagði Ian glottandi:
„Nei, ég er bara ánægður með mína ákvörðun núna að undanfarna leiki var ég að hugsa um þennan leik. Ég kom hingað fyrir fjórum eða fimm dögum síðan og hvíldi Cloe í hálfleik og Rebekah spilaði bara 60 mínútur í tveimur leikjum í röð. Þetta er ákvörðun sem lýtur vel út núna.”

Nánar er rætt við Ian hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner