Cristiano Ronaldo hefur sagt að hann vilji nýjan samning hjá Real Madrid er hann kemur til baka úr fríinu sem hann er í.
Hann var Evrópumeistari með Portúgal í sumar en hann meiddist í úrslitaleiknum og er hann sem stendur að jafna sig á þeim meiðslum á meðan hann er í fríi í heimaborginni, Madeira.
„Ég er búinn að spjalla við forseta Real og við ætlum að ræða málin enn frekar þegar ég kem til baka."
„Ég hef nefnt það oft að mig langar í nýjan samning og félagið vill það líka," sagði Ronaldo.
Athugasemdir