Viðar Örn Kjartansson skoraði eina mark Malmö í 1-1 jafntefli við Kalmar í dag.
Viktor Elm kom Kalmar yfir í fyrri hálfleik eftir undirbúning nafna hans, Rasmus Elm.
Staðan var 1-0 alveg þangað til í blálokin en þá kom okkar maður, Viðar Örn og tryggði Malmö jafntefli.
Viðar Örn sem og Kári Árnason spiluðu allan leikinn hjá Malmö sem er enn á toppi deildarinnar, stigi á undan Norrköping.
Athugasemdir