Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. júlí 2017 08:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Carlos Bacca líklega á förum frá AC Milan
Hvert fer Bacca?
Hvert fer Bacca?
Mynd: Getty Images
Kólumbíski framherjinn Carlos Bacca er að öllum líkindum á leið frá AC Milan.

Hann var ekki valinn í hópinn sem mætir CSU Craiova frá Rúmeníu í undankeppni Evrópudeildarinnar.

Montella stjóri AC Milan var spurður eftir sigur liðsins á Bayern München í gær hvers vegna hann spilaði ekki Carlos Bacca.

„Ég spilaði honum ekki því hann mun ekki spila á fimmtudaginn," og staðfesti að Bacca væri líklega á förum.

Bacca kom til AC Milan frá Sevilla 2015, hann hefur skorað 31 mark í ítölsku úrvalsdeildinni á hans fyrstu tveimur tímabilum.
Athugasemdir
banner
banner
banner