Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 23. júlí 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cristhian Stuani til Girona (Staðfest)
Stuani er farinn frá Middlsbrough.
Stuani er farinn frá Middlsbrough.
Mynd: Getty Images
Cristhian Stuani hefur yfirgefið Middlesbrough og er genginn í raðir spænska liðsins Girona.

Kaupverðið á honum er ekki gefið upp á þessum tímapunkti.

Stuani, sem er þrítugur, kom til Middlesbrough árið 2015. Hann spilaði 66 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 16 mörk.

Girona er að fara að spila í spænsku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn. Stuani ætlar að taka þátt í þeirri veislu.

Hann skoraði 11 mörk er Middlesbrough vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni, tímabilið 2015/16 og hann bætti nokkrum við í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.



Athugasemdir
banner
banner
banner