Darren Bent, sóknarmaður Derby County, verður líklega frá fram að jólum eftir að hafa meiðst aftan í læri.
Bent, sem er 33 ára gamall, meiddist í æfingaleik gegn Port Vale og í ljós kom eftir skoðanir að hann yrði lengi frá.
„Darren fór í skoðun og hitti sérfræðing í Lundúnum eftir að hafa meiðst á þriðjudag gegn Port Vale."

„Við fengum ekki góðar fréttir eftir það. Hann verður líklega frá fram að jólum," sagði Gary Rowett, stjóri Derby, við vef félagsins.
Bent lék 42 leiki á síðasta tímabili og skoraði 13 mörk. Derby hefur tímabilið í Championship-deildinni með leik gegn Sunderland, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, þann 4. ágúst.
Athugasemdir