„Það er frábært að fá sex stig í tveimur leikjum. Við gerðum greinilega eitthvað rétt í fríinu," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, eftir 2-1 sigur á ÍBV.
Á lokamínútunum pressuðu Eyjamenn mjög stíft í leit að jöfnunarmarki en Ágúst var heitt í hamsi á hliðarlínunni á meðan þar sem hann öskraði sína menn áfram.
„Þetta var einn erfiðasti leikur sem maður hefur upplifað, sérstaklega síðustu mínúturnar þar sem þeir herjuðu á okkur. Boltinn datt einhverneginn alltaf til þeirra í teignum. Við vorum með tíu menn í teignum og það var erfitt fyrir þá að koma boltanum framhjá okkur."

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 1 ÍBV
Gústi mætti rennandi blautur í viðtal líkt og eftir sigurinn á Grindavík í síðustu viku. Leikmenn Fjölnis hella vatni yfir hann eftir sigurleiki.
„Þeim finnst rosalega gaman að bleyta kallinn þegar við vinnum. Ég er alveg til í það. Ég er til í allt þegar við vinnum," sagði Gústi.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir