Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. júlí 2017 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ísland í dag - Grindavík heimsækir Stjörnuna
Tekst Andra Rúnari að skora gegn Stjörnunni?
Tekst Andra Rúnari að skora gegn Stjörnunni?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru fjórir leikir á dagskrá Pepsi-deildar karla í dag,12. umferð deildarinnar hófst í gær og henni lýkur ekki fyrr en á þriðjudaginn.

Það eru tveir leikir sem hefjast klukkan 17:00, í Grafarvogi fá heimamenn í Fjölni, ÍBV í heimsókn. Fjölnir sigraði Grindavík örugglega í síðustu umferð, 4-0, en Eyjamenn töpuðu hins vegar 6-3 fyrir KA fyrir Norðan.

Það verður einnig flautað til leiks á Akureyrarvelli klukkan 17:00, KA fær þá Breiðablik í heimsókn. Það munar aðeins þremur stigum á liðunum, KA situr í fimmta sæti með 15 stig en gestirnir eru í því níunda með 12 stig.

Klukkan 19:15 er komið að Reykjavíkurslag Víkings R. og KR, Vesturbæjarliðinu vantar sárlega þrjú stig til að koma sér frá fallsvæðinu en Víkingsmenn eru hins vegar í 6. sæti með 15 stig, fjórum stigum meira en KR.

Stjarnan og Grindavík mætast síðan í lokaleik dagsins, flautað verður til leiks þar klukkan 20:00, Stjarnan sem er í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar getur jafnað Grindavík að stigum með sigri en sigri Grindavík þá jafna þeir Val að stigum sem trónir á toppnum.

Í 4. deild karla eru tveir leikir á dagskrá, ÍH og Vatnaliljur mætast klukkan 14:00 og á sama tíma eigast við Álftanes og Geisla A.

sunnudagur 23. júlí

Pepsi-deild karla 2017
17:00 Fjölnir-ÍBV (Extra völlurinn)
17:00 KA-Breiðablik (Akureyrarvöllur) (Stöð 2 Sport)
19:15 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)
20:00 Stjarnan-Grindavík (Samsung völlurinn) (Stöð 2 Sport)

4. deild karla 2017 B-riðill
14:00 ÍH-Vatnaliljur (Gaman Ferða völlurinn)

4. deild karla 2017 D-riðill
14:00 Álftanes-Geisli A (Bessastaðavöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner