sun 23. júlí 2017 10:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Zidane: Ronaldo mun vera hér næstu 2-3 árin
Zinedine Zidane
Zinedine Zidane
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane stjóri Real Madrid á von á að Cristiano Ronaldo verði hjá Real Madrid næstu 2-3 árin.

Fréttir bárust af því fyrr í sumar að Ronaldo vildi komast frá Real Madrid en það virðist ekki ætla að gerast þetta árið.

„Það hafa verið margar sögur í gangi um að Ronaldo vilji fara. Ég trúi aðeins á einn hlut, í hvert skipti sem ég tala við hann er hann mjög rólegur."

„Hann mun koma til okkar fimmta ágúst og ég held að hann muni vera hjá okkur næstu tvö til þrjú árin," sagði Zidane.

Real Madrid tekur þátt í æfingamótinu, International Champions Cup, en þeir mæta þar Manchester United i kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner