Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fös 23. ágúst 2013 09:44
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Rodgers: Erfitt fyrir Real Madrid að fá Suarez núna
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segir að það sé erfitt fyrir Real Madrid að krækja í Luis Suarez núna þegar innan við tvær vikur eru eftir af félagaskiptaglugganum.

Suarez hefur lengi verið orðaður við Real Madrid en Rodgers segir að ólíklegt sé að spænska félagið fái leikmanninn núna í sínar raðir.

,,Þetta er mjög erfiður tími (fyrir tilboð í Suarez)," sagði Rodgers.

,,Við erum að reyna að fá einn eða tvo gæða leikmenn til okkar. Ef við missum Luis á þessu stigi þá verður erfitt að fylla skarð hans."

,,Þetta hefði getað gengið fyrir nokkrum mánuðum þegar við höfðum tíma en ekki þegar það eru ellefu dagar eftir."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner