Aston Villa 0 - 0 Newcastle
Rautt spjald: Mike Williamson, Newcastle ('90)
Rautt spjald: Mike Williamson, Newcastle ('90)
Aston Villa og Newcastle mættust í opnunarleik dagsins í enska boltanum.
Newcastle voru betri í fyrri hálfleik og sköpuðu sér fleiri færi en tókst ekki að koma boltanum framhjá Brad Guzan í marki heimamanna. Remy Cabella fékk besta færið en skot hans úr teignum fór rétt framhjá markinu.
Staðan var því markalaus í hálfleik.
Svipað var upp á teningnum í síðari hálfleik, Newcastle fékk fleiri og betri færi en tókst ekki að skora.
Undir lokin fékk Mike Williamson, miðvörður Newcastle sitt annað gula spjald og þar með rautt en ekki var nægur tími fyrir Villa að nýta sér það og niðurstaðan því markalaust jafntefli.
Athugasemdir